Heimspekikaffi með Gunnari Hersveini: Vínlaus lífstíll

Gunnar Hersveinn heimspekingur og Lára G. Sigurðardóttir læknir bjóða upp á heimspekikaffi um kosti þess að tileinka sér vínlausan lífsstíl til að bæta lífið.

Lýsing

Tilefnið er útgáfa bókarinnar Vending – vínlaus lífsstíll eftir Gunnar Hersvein. Bókin er skrifuð fyrir fólk sem vill endurmóta líf sitt, velja sér gildi, efla kosti og dempa ókosti, fyrir fólk sem vill tileinka sér vínlausan lífsstíl, bæta sjálfsskilning og ná árangri. Bókin er skrifuð fyrir þau sem vantar vendipunkt, verkfæri, kraft, samtal og lífsgildi til að stíga skrefið. Efnið er um sjálfsaga og vellíðan, hvernig höndla beri veik­leika og efla styrkleika.

Gunnar Hersveinn heimspekingur er höfundur met­sölubókarinnar Gæfuspor – gildin í lífinu, þar sem fjallað er á skýran og gagnlegan hátt um helstu lífs­gildin. Bókin Vending fjallar um hvað þarf til þegar venda á kvæði sínu í kross. Gunnar var með vinsælt og fjölsótt heimspekikaffi hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur um árabil.

Dr. Lára G. Sigurðardóttir starfar sem læknir á Sjúkrahúsinu Vogi. Hún er með doktorsgráðu í lýðheilsuvísindum og hefur unnið að forvörnum um langt skeið. Lára skrifaði Húðbókina ásamt Sólveigu Eiríksdóttur.

Heimspekikaffið fer þannig fram að Gunnar og Lára eiga samtal um helstu lífsgildi sem koma við sögu og um áhrif áfengis á hug, heila og heilsu og opna svo fyrir samtal við gesti. Öll velkomin, enginn aðgangseyrir.

Vitnisburður þáttakenda

Verð:

Kennarar

Gunnar Hersveinn heimspekingur og rithöfundur
Dr. Lára G. Sigurðardóttir

Tímasetning

17. janúar 2024
Kl. 20:00 – 21:30

Tímalengd

1,5 klst.

Staðsetning

Vinnustofa Sögu, Flatahraun 3, 2. hæð, 220 Hafnarfjörður

Verð

Facebook