Fjölbreytt fræðsla

- fyrir fólk og fyrirtæki

 

Allt á einum stað! Hvað má bjóða þér?
Fræðsla, fallegur salur, veitingar, veisluþjónusta, djúpslökun, happy hour, eitthvað fleira?

Saga Story House Est. 2019
Heilsueflandi fræðslufyrirtæki

Vellíðan (wellbeing) á vinnumarkaði:

 – Fyrirlestrar, fræðsla,
– Stjórnendaþjálfun, starfsmannahópar 
– Handleiðsla
– Sérsniðnir starfsdagar, heilsueflandi ferðir 
– Heilsueflandi breytingar á vinnurýmum

Námskeið

Námskeið, fyrirlestrar og starfsdagar fyrir einstaklinga og starfsmannahópa. Námskeiðin fara fram í notalegu lærdómsumhverfi á Vinnustofu Sögu.

Um okkur

Guðbjörg Björnsdóttir iðjuþjálfi og Ingibjörg Valgeirsdóttir MBA, BA. uppeldis- og menntunarfræði, eigendur og þjálfarar Sögu – Story House.

Um Sögu

Saga – Story House er farvegur fyrir lærdóm og framþróun einstaklinga og starfsmannahópa. Lífsgæðafyrirtæki, stofnað árið 2019. 

Á námskeiðum Sögu er stuðst við hugmyndafræði og kennsluaðferðir sem byggja á  gagnreyndri nálgun; hugmyndafræði iðjuþjálfunarfræða, reynslunáms (Experiential Learning), kenningar um heilandi áhrif náttúru, umhverfissálfræði, hæglæti (Slow Living), Yoga Nidra og núvitundarþjálfun (Insight Meditation / Mindfulness).

Leiðarljós Sögu er að efla tengsl einstaklinga við sjálfa sig, samferðafólkið og náttúruna. Við trúum að þar liggi kjarni lífsgæða, árangurs og framþróunar.