Djúpslökun – Yoga Nidra – með Hrafnhildi Sævars

Gefðu þér tíma! Djúpslökun með Hrafnhildi Sævars er bæði mild og áhrifarík. Opnir tímar og klippikort, einkatímar fyrir hópa. Aallt til alls á staðnum, dýnur, teppi, púðar og augnhvílur. Settu þig í fyrsta sæti!

 

 

 

Lýsing

Djúpslökun með aðferðum Yoga Nidra samanstendur af líkams- öndunar- og núvitundaræfingum. Yoga Nidra þýðir ,,jógískur svefn“ þar sem farið er inn á dýpsta svið slökunar á sama tíma og fullri meðvitund er haldið.

Í Yoga Nidra djúpslökun er hugurinn leiddur markvisst áfram í þeim tilgangi að virkja slökunarviðbragð líkamans til að sporna gegn neikvæðum áhrifum streitu á heilsu og lífsgæði.

Markmið/Ávinningur
Yoga Nidra djúpslökun losar um spennu og streitu, dregur úr vöðvaspennu og verkjum og hefur jákvæð áhrif á blóðþrýsting. Djúpslökunin styrkir jafnframt taugakerfið, bætir svefn og einbeitingu og styður við hvíld og endurheimt.

Fyrir hverja?
Djúpslökun er fyrir alla þá sem vilja efla heilsu og bæta líðan og lífsgæði. Yoga Nidra er aðgengileg iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inn í djúpa kyrrð og hvíld í notalegu og nærandi rými á vinnustofu Sögu.

Fyrir hópa
Það er tilvalið að panta einkatíma í djúpslökun fyrir starfsmannahópa, vinahópa og aðra hópa þar sem við sérsníðum tímalengd og tímasetningu að þörfum hópsins.  Endilega hafðu samband í síma 625 8550 eða sendu okkur tölvupóst á saga@sagastoryhouse.is

 

Vitnisburður þáttakenda

,,Ég hafði aldrei prófað þetta og kom á óvart hversu mikil slökun þetta er. Finn að mig langar í svona slökun reglulega. Þetta er ekki bara að liggja heldur að geta slakað án þess að hugurinn fari á flug"

Verð:

2.800kr.19.800kr.

Kennarar

Hrafnhildur Sævarsdóttir, íþrótta- og yogakennari

Tímasetning

Þriðjudagar og fimmtudagar
kl. 17:30 – 18:15 – Bókaðu hér!

Tímalengd

45 mín

Staðsetning

Vinnustofa Sögu, Flatahraun 3, 2. hæð, 220 Hafnarfjörður

Verð

2.800kr.19.800kr.
Stéttarfélög hafa tekið þátt í kostnaði vegna þátttöku á þessu námskeiði. Við hvetjum þig til að kanna möguleika hjá þínu stéttarfélagi.
Facebook