Lífsgæði í grunnskólastarfi er fræðslupakki fyrir grunnskóla sem inniheldur mismunandi vinnustofur með áherslu á að efla vellíðan í vinnunni (wellbeing). Hægt er að velja vinnustofur að vild. Sérsníðum einnig í samráði við skólastjórnendur.
Lífsgæði í grunnskólastarfi er fræðslupakki fyrir grunnskóla sem inniheldur mismunandi vinnustofur með áherslu á að efla vellíðan í vinnunni (wellbeing). Hægt er að velja vinnustofur að vild. Sérsníðum einnig í samráði við skólastjórnendur.
Lífsgæði í grunnskólastarfi fræðslupakki fyrir starfsfólk grunnskóla sem inniheldur ólíkar vinnustofur með áherslu á vellíðan í vinnunni (wellbeing). Það er mikilvægt að hafa leiðir til að hlúa að og efla starfsfólk í gefandi en jafnframt krefjandi vinnuumhverfi grunnskóla.
Hægt er að velja eina eða fleiri vinnustofur að vild. Um er að ræða fjölbreyttar leiðir til að hlúa að starfsfólki, öðlast verkfæri og vekja vitund um jákvæða heilsu, starfsorku, endurheimt og streitulosun. Hvernig getum við aukið lífsgæði í starfi?
Allar vinnustofur má lengja, stytta og aðlaga að þörfum starfsstaða. Hægt er að sérvelja veitingar fyrir starfsmannahópa. Saga býður einnig upp á fyrirlestra tengdum vinnustofunum og fleiri áherslum.
Vinnustofa 1
Samskipti, og liðsheild
Hver starfstaður er á vegferð þar sem landslagið er fjölbreytt og veðrið allskonar. Á þeirri vegferð er mikilvægt að staldra við öðru hvoru og stilla saman strengi, þétta raðirnar og taka upp úr bakpokanum: Hvað erum við ánægð með? Hvað má bæta? Hvað getum við skilið eftir? Skemmtileg hópavinna þar sem draumavinnufélaginn lætur sjá sig.
Tímalengd: 2 klst.
Vinnustofa 2
Vinnuvistfræði og áhrif umhverfis á líðan
Vinnuumhverfi hefur áhrif á starfsorku og vellíðan í vinnunni. Á þessari vinnustofu beinum við athygli að styrkleikum í vinnuumhverfi vinnustaðarins, möguleika hvers og eins á að hafa áhrif á vinnuumhverfið og hugum að vinnustellingum og lífsgæðum í starfi.
Tímalengd: 2 klst.
Vinnustofa 3
Núvitund og næring í starfi, Yoga Nidra djúpslökun
Vinnustofa þar sem við beinum athyglinni að því sem nærir þig í vinnunni, allt frá fyrsta kaffibollanum að tilgangi í starfi. Hvað finnst þér gott að gefa? Hvað nærir þig? Hvað veitir þér orku? Mikilvægt er að missa ekki sjónar af þessum þáttum í hraða og álagi hversdagsins því þarna felst starfsorkan og starfsánægjan. Vinnustofan lýkur með notalegri djúpslökun fyrir starfsmannahópinn.
Tímalengd: 2 klst.
Vinnustofa 4
Styrkleikar og starfsorka
Afhverju er mikilvægt fyrir þig að þekkja styrkleika þína og samstarfsfólks þíns? Á þessari vinnustofu tekur starfsfólk styrkleikapróf og fræðist um áhrif styrkleika og flæðis (flow theory) á jákvæða heilsu, starfsorku, streitulosun og vellíðan í vinnunni.
Tímalengd: 2 klst.
Kennsluaðferðir: Fjölbreyttar kennsluaðferðir með áherslu á virka þátttöku og hlýja og nærandi upplifun í notalegu lærdómsumhverfi. Vinnustofurnar eru einnig í boði inni á starfsstöðum.
Ath. verð fer eftir tímalengd og stærð hópa
Saga - Story House
Flatarhraun 3, 220 Hafnarfirði
Kt. 510119-0100
Banki: 0133-26-020435
saga@sagastoryhouse.is
625 8550 | 625 8560
Fylgstu með og skráðu þig á póstlistann
Cookie | Duration | Description |
---|---|---|
cookielawinfo-checbox-analytics | 11 months | This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Analytics". |
cookielawinfo-checbox-functional | 11 months | The cookie is set by GDPR cookie consent to record the user consent for the cookies in the category "Functional". |
cookielawinfo-checbox-others | 11 months | This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Other. |
cookielawinfo-checkbox-necessary | 11 months | This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookies is used to store the user consent for the cookies in the category "Necessary". |
cookielawinfo-checkbox-performance | 11 months | This cookie is set by GDPR Cookie Consent plugin. The cookie is used to store the user consent for the cookies in the category "Performance". |
viewed_cookie_policy | 11 months | The cookie is set by the GDPR Cookie Consent plugin and is used to store whether or not user has consented to the use of cookies. It does not store any personal data. |