Boltar og bandvefslosun – grunnnámskeið með Hrafnhildi Sævars

Boltar og bandvefslosun, grunnnámskeið með Hrafnhildi Sævarsdóttur.  Í fyrri hluta tímans læra þátttakendur boltanudd sem mýkir og losar spennu í líkamanum og fá svo leidda djúpslökun og hugleiðslu í seinni hluta hvers tíma.

Lýsing

Hver tími er tvískiptur. Tímarnir byrja á boltanuddi þar sem þátttakendur læra tækni til að losa um bandvefinn og mýkja og losa um spennu í líkamanum með sérvöldum boltum.  Í lok hvers tíma eru þátttakendur svo leiddir inn í djúpslökun með aðferðum Yoga Nidra og hugleiðsla.

Boltanudd er einföld sjálfsnuddtækni sem vinnur á öllum kerfum líkamans. Þessi tækni er hönnuð til að losa um spennu, bæta og auka hreyfigetu ásamt því að auka líkamsvitund okkar.  Farið er í nuddtækni sem auðvelt er að tileinka sér og gott að gera á milli tíma og út ævina.

Yoga Nidra er leidd djúpslökun sem samanstendur af líkams- öndunar- og núvitundaræfingum. Yoga Nidra þýðir ,,jógískur svefn“ þar sem farið er inn á dýpsta svið slökunar á sama tíma og fullri meðvitund er haldið. Í Yoga Nidra djúpslökun er hugurinn leiddur markvisst áfram í þeim tilgangi að virkja slökunarviðbragð líkamans til að sporna gegn neikvæðum áhrifum streitu á heilsu og lífsgæði.

Markmið/Ávinningur

Boltanudd og Yoga Nidra djúpslökun losar um spennu og streitu, dregur úr vöðvaspennu og verkjum og hefur jákvæð áhrif á blóðþrýsting. Nuddið og slökunin styrkir jafnframt taugakerfið, bætir svefn og einbeitingu og styður við hvíld og endurheimt.

Búnaður
Boltar, dýnur, púðar og teppi eru til staðar á Vinnustofu Sögu. Þátttakendur geta keypt bolta á staðnum ef þeir vilja nota bolta heima.

Fyrir hverja?
Námskeið fyrir öll þau sem vilja efla heilsu og bæta líðan og lífsgæði.  Boltanudd er fyrir fólk á öllum aldri og hægt að aðlaga æfingarnar, fara dýpra í nuddið eða grynnra allt eftir því hvað hver og einn þarfnast. Yoga Nidra er aðgengileg iðkun, þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inn í djúpa kyrrð og hvíld í notalegu og nærandi rými á vinnustofu Sögu.

Kynningarverð: 19.900

Innifalið
Innifalið í námskeiðsgjöldum er aðgangur að öllum opnum tímum í djúpslökun með aðferðum Yoga Nidra og Gong tónheilun. Opnir tímar eru þrisvar í viku, mánudaga 12:10 – 12:50, miðvikudaga 16:30 – 17:15 og föstudaga 12:30 – 12:50.

Hrafnhildur
Hrafnhildur Sævarsdóttir er íþrótta- og sundkennari með yfir 20 ára kennslureynslu og reyndur yogakennari með yfir 700 tíma fjölbreytt yogakennaranám að baki. Hrafnhildur hefur meðal annars lokið 250 klst. yogakennaranám hjá Ástu Arnardóttur í Yogavin, 200 klst. yogakennaranámi hjá Iceland Power Yoga, Yoga Nidra kennaranámi fyrir bæði börn og fullorðna, Yin Yoga kennararnámi, meðgönguyogakennaranámi og kennararéttindum í núvitund.

Vitnisburður þáttakenda

Verð:

19.900kr.

Kennarar

Hrafnhildur Sævarsdóttir Yogakennari með yfir 700 tíma fjölbreytt kennaranám | Íþrótta- og sundkennari | MA diploma í jákvæðri sálfræði

Tímasetning

14. maí 2024 | Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:20-19:20

Tímalengd

8 skipti

Staðsetning

Vinnustofa Sögu, Flatahraun 3, 2. hæð, 220 Hafnarfjörður

Verð

19.900kr.
Stéttarfélög hafa tekið þátt í kostnaði vegna þátttöku á námskeiðum Sögu. Við hvetjum þig til að kanna möguleika hjá þínu stéttarfélagi.
Facebook