Staldra við – Eirð Retreat

Á meðan Svava Björk Hjaltalín listakokkur galdrar fram töfrandi veitingar handa þér, þá nýtur þú þess að Staldra við í fegurðinni á Eirð Retreat, fræðast, nærast og hlúa að líkama og sál. Endurnærandi  upplifun og verkfæri sem við viljum öll hafa í verkfærakistunni! Aðeins 18 þátttakendur.

Tryggðu þér pláss!

Lýsing

Kveðjum vetur – Fögnum sumri!

Staldra við – Eirð Retreat er þriggja daga heildrænt námskeið og heilsudvöl þar sem náttúra, fagleg fræðsla, djúp hleðsla og töfrandi veitingar fléttast saman í fallegu flæði í einstakri fegurð á Eirð Retreat.

Sjón er sögu ríkari! Við hvetjum þig til að skoða myndirnar á vef Eirð Retreat – Vacation Rental, Retreat

Þetta er einstakt rými til að staldra við og hlaða batteríin þegar sumarið gengur í garð með hraða og krafti.

Staldra við – Eirð Retreat byggir á efni og innihaldi Staldra við – Náttúrunámskeiði við streitu, bæði grunn- og framhaldsnámskeiðinu. Námskeiðið fjallar um gagnreyndar aðferðir og leiðir sem styðja við streitulosun, endurheimt, starfsorku og jákvæða heilsu.

Dagskrá námskeiðsins er fléttað saman í fallegu flæði sem hefst fimmtudaginn 23. apríl. kl. 17:30 og lýkur laugardaginn 25. apríl kl. 13:30.

– Fræðsla
– Hugleiðsla, öndun og mildar teygjur
– Djúpslökun með aðferðum Yoga Nidra og Gong tónheilun
– Heitur pottur og flothettur
– Kyrrðargöngur með leiddri núvitundarþjálfun í náttúrunni

Hvað gerir Staldra við – Eirð Retreat einstakt? 

Það er ekki bara slökun.
Það er ekki bara fræðsla.

Það er upplifun sem:
– Styrkir heilaheilsu
– Styður við líkamlega vellíðan
– Eykur andlega ró
– Skerpir fókus og sköpunarkraft
– Eflir starfsorku og lífsgæði
– Byggir á gagnreyndri nálgun þar sem rannsókn hefur verið gerð á áhrifum námskeiðsins á þátttakendur.

Steita ekki að yfirgefa vinnumarkaðinn
Streitan er ekki að fara að yfirgefa vinnumarkaðinn. Sem betur fer ekki! Hið fullkomna viðbragðskerfi líkamans hefur hjálpað okkur að lifa af sem mannkyn. Góð blanda af einbeitingu, drifkrafti og atorku er uppskriftin af því að láta verkin tala, ná markmiðum og árangri og upplifa bæði starfsorku og lífsgæði. Ef hlutföllin í uppskriftinni eru nokkuð góð þá er orðið streita trúlega fjarlægt þér. Ef jákvæð streita fer hinsvegar að þróast yfir í neikvæða streitu þá eru líkur á því að þú upplifir áhrif hennar á eigin skinni ekkert sértaklega vel. Sem er allt í lagi í smástund – eða þangað til að hún fer að hafa áhrif á heilsu þína til lengri tíma.

Neikvæð áhrif streitu
Sterkasta vopnið gegn neikvæðum áhrifum streitu á heilsu og lífsgæði í lífi og starfi er að vera vakandi yfir eigin streituviðbrögðum og vita hvað virkar best fyrir þig. Neikvæð áhrif streitu eru mjög ólík milli einstaklinga. Svefnleysi, vöðvabólga, stoðkerfisverkir, einbeitingarskortur og minnistruflanir eru dæmi um einkenni sem neikvæð streita getur haft í för með sér. Þrautseigja, dugnaður og metnaður geta haldið okkur lengi gangandi eftir að neikvæð áhrif streitu gera vart við sig og þannig geta þessir styrkleikar okkar leitt til þess að við förum að ganga á okkar eigin heilsu. Því miður þá getum við gengið hættulega langt á hana.

Góðu fréttirnar
Góð fréttirnar eru hinsvegar þær að líkaminn hefur ótrúlega getu til að heila sig sjálfur, ef við gefum honum svigrúm og tækifæri til þess að hlaða batteríin. Stundum þarftu bara að staldra við. Gefa þér tíma til að hlusta og hlúa að og nýta styrkleika þína á nýjan hátt fyrir þig og heilsuna þína. Undanfarna áratugi hefur þekking og þekkingarmiðlun á heilsueflandi leiðum og tækifærum til að takast á við streitu nútímans aukist svo um munar. Með þekkingu á því sem virkar fyrir þig stendur þú sterkari að vígi í áskorunum daglegs lífs.

Yfir hundrað hópar
Staldra við – Náttúrunámskeið við streitu hefur verið í boði í hverjum mánuði, allan ársins hring, undanfarin 7 ár. Vel á annað hundrað hópar hafa farið í gegnum grunn- og framhaldsnámskeiðið, auk þess sem Staldra við  hefur verið í boði fyrir enskumælandi þátttakendur og í fjarnámi fyrir fólk á landsbyggðinni.

Rannsókn á áhrifum námskeiðsins
Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands stóð fyrir rannsókn á áhrifum námskeiðsins á þátttakendur. Berglind Magnúsdóttir  er aðalhöfundur rannsóknarinnar og voru niðurstöður jákvæðar eins og sjá má hér: Lokaverkefni: „Náttúran græðir og grætur með mér: Áhrif náttúru á streitu“ | Skemman.

Markmið
– Að þátttakendur öðlist þekkingu og reynslu af gagnreyndum leiðum sem draga úr neikvæðum áhrifum streitu og styðja við endurheimt og starfsorku

– Að þátttakendur öðlist valdeflandi sjálfsþekkingu á því sem styður við jákvæða heilsu og vellíðan

Hugmyndafræði
Stuðst er við hugmyndafræði iðjuþjálfunarfræða, jákvæða sálfræði, hugmyndafræði reynslunáms (Experiential learning) umhverfissálfræði, núvitundarfræði og fleiri gagnreyndar leiðir sem kennarar hafa áralanga reynslu af að miðla með góðum árangri.

Eirð Retreat
Eirð Retreat er sannarlega einstakur staður. Við ætlum að fara í fangið á fegurðinni og friðsældinni í vönduðu umhverfi þar sem gæði og fegurð fanga öll skynfæri þín. Þar ætlar listakokkurinn Svava Björk Hjaltalín, eigandi Eirð Retreat, að töfra fram eftirminnilegar veitingar fyrir okkur og hefst upplifunarveislan með kvöldverði á Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 22. apríl.

Staðsetning
Eirð Retreat er staðsett á suðurlandinu, við Gíslholtsvatn eystra nálægt Hellu, eða í um hálftíma akstri frá Selfossi. Þátttakendur koma sér sjálfir á staðinn og verður hægt að koma sér fyrir á Eirð Retreat frá kl. 17:00.

Aðeins 18 pláss!
Gist er í 2 manna fallegum herbergjum eða gestahúsum. 3 gestahús eru í boði fyrir 2 þátttakendur hvert – fyrstir koma, fyrstir fá! Sjá nánar á vef Eirð Retreat: Eirð Retreat – Vacation Rental, Retreat

Styrkir frá stéttarfélögum 
Stéttarfélög og starfsstaðir hafa tekið þátt í kostnaði þátttakenda á Staldra við námskeiðum Saga Story House, kannaðu þína möguleika. Við getum sent þér nákvæmari námskeiðslýsingu sem ætluð er stéttarfélögum eða starfsstöðum.

Verð
Námskeiðið í heild með gistingu og veitingum kostar kr. 135.000.
Ef þú vilt skipta greiðslum hafðu endilega samband: saga@sagastoryhouse.is

Vitnisburður þáttakenda

Verð:

135.000kr.

Kennarar

Guðbjörg Björnsdóttir Iðjuþjálfi MA diplóma í jákvæðri sálfræði | Yoga Nidra kennararéttindi
Ingibjörg Valgeirsdóttir MBA | MA diplóma í jákvæðri sálfræði | BA Uppeldis- og menntunarfræði | Yoga- og Yoga Nidra kennararéttindi

Tímasetning

Fimmtudagur 23. apríl: Sumardaginn fyrsti! Kl. 17:30
Laugardagur 25. apríl kl. 13:30

Tímalengd

Dagskrá frá 17:30 á fimmtudegidegi til 13:30 á laugardegi

Staðsetning

Eirð Retreat við Gíslholtsvatn eystra, nálægt Hellu

Verð

135.000kr.
Stéttarfélög hafa tekið þátt í kostnaði vegna þátttöku á Staldra við námskeiðum Sögu. Við hvetjum þig til að kanna möguleika hjá þínu stéttarfélagi.
Facebook