Ábyrgð – deilum henni!

Tölum um tækifærin! Ábyrgð hefur áhrif á árangur, starfsánægju, starfsorku, heilsu og hamingju. Það er mikilvægt fyrir bæði stjórnendur og starfsfólk að þekkja tækifæri og áskoranir í tengslum við ábyrgð. Fyrirlestrar og námskeið fyrir fyrirtæki, félagasamtök og hópa.

Lýsing

Ábyrgð og ábyrgðartilfinning hefur áhrif á árangur, starfsánægju, starfsorku, heilsu og hamingju. Skortur á skýrum markmiðum eða skýrri ábyrgð er algengur streituvaldur á vinnustöðum og getur valdið óöryggi og álagi og hamlað þannig árangri bæði starfsfólks og starfsstaðarins í heild. Það er því mikilvægt fyrir bæði stjórnendur og starfsfólk að þekkja tækifæri og áskoranir í tengslum við ábyrgð.


Ábyrgð

Við skoðum ábyrgð út frá ólíkum sjónarhólum:

  • Hvað ábyrgð getur verið valdeflandi og orkugefandi
  • Hvernig stjórnendum og starfsfólki getur vantað nýja eða aukna ábyrgð til að njóta sín til fulls
  • Hvernig óskýr ábyrgð getur haft streituvaldandi áhrif í starfi
  • Hvernig það að deila ábyrgð getur bæði verið áskorun og tækifæri
  • Hvernig ábyrgð getur farið yfir í stjórnsemi og meðvirkni
  • Hvernig ímynduð, huglæg ábyrgð getur verið streituvaldandi


Ávinningur/markmið

  • Að starfsfólk þekki eigin áskoranir, tækfæri og vaxtamöguleika varðandi ábyrgð
  • Að auka meðvitund um mikilvægi skýrrar ábyrgðar
  • Að styðja við og efla jákvæða heilsu starfsfólks
  • Að styðja við og efla jákvæða vinnustaðamenningu
  • Að styðja við markmið og árangur vinnustaðarins þíns

 

Bókaðu: saga@sagastoryhouse.is / S: 625 8550

  • Fyrirlestur 10 – 60 mínútur, eftir þörfum
  • Námskeið 1 klst.
  • Námskeið 2 klst.
  • Námskeið 2 klst plús þar sem við sérsníðum eftir þínum þörfum
  • Ábyrgð er einnig í boði sem opin námskeið fyrir einstaklinga og sem stjórnendaþjálfun.
    Fylgstu með auglýsingum á fb-síðu Sögu, Instagram og hér á vefnum.


Verð

Verð fer eftir tímalengd og fjölda þátttakenda

Við virkjum vísindin með vinnustaðnum þínum og notum gagnreyndar leiðir til að ná árangri. Við bjóðum upp á valdeflandi vinnustofu með virkri þátttöku sem styður við jákvæða og árangursríka vinnustaðamenningu. Hver vinnustaður á sér ríka sögu. Hvernig viljið þið skrifa næsta kafla í ykkar sögu? 

 

Stækkaðu stundina!

Veitingar!
Við lærum lítið þegar við erum svöng! Við hjálpum þér að hugsa vel um hópinn þinn:

  • Fallegur ostabakki með fjölbreyttu gúmmelaði, sódavatni og engiferskoti meðan á fræðslu stendur. Verð kr. 1.250 per þátttakanda.
  • Við pöntum aðrar veitingar að vild fyrir hópinn þinn og framreiðum fallega fyrir fólkið þitt
  • Viltu bjóða upp á ,,happy hour“ í lok námskeiðs?

    *Ath. Við getum sent sér reikning fyrir veitingum. 


Djúpslökun! 

Hlúðu að starfsfólkinu þínu!

  • Við leiðum hópinn þinn inn í notalega, nærandi djúpslökun í lok tímans
  • Við bjóðum upp á reynda kennara og allan búnað; dýnur, púða, teppi og augnhvílur, svo að fólkinu þínu líði sem best

 

Vinnustofu Sögu!

  • Skiptu um umhverfi og bjóddu hópnum þínum upp á notalega upplifun í fallegu lærdómsumhverfi á vinnustofu Sögu
  • Nýttu þér aðstöðuna á Sögu og lengdu daginn með öðrum fyrirlesurum eða annarri vinnu með hópnum þínum
    Leiga fyrir aðra fræðslu/vinnu: Kr. 12.000 per klst. Innifalið: Kaffi, te, frágangur og þrif

 

Við mælum með!

 

  • Lengdu daginn og bættu við fleiri vinnustofum eða fyrirlestrum frá Sögu
  • Fáðu tilboð í heilsueflandi fræðslupakka Sögu og veldu nokkrar vinnsutofur og/eða fyrirlestra til að nýta fyrir starfsstaðinn þinn yfir árið
  • Skoðaðu vöruúrval Sögu hér:  Námskeið – Saga Story House
  • Heyrðu í okkur og við hjálpum þér að velja það besta fyrir hópinn þinn!

Vitnisburður þáttakenda

Verð:

Kennarar

Ingibjörg Valgeirsdóttir MBA | MA diplóma í jákvæðri sálfræði | BA Menntunarfræði | Yogakennararéttindi
Guðbjörg Björnsdóttir iðjuþjálfi | MA diplóma í jákvæðir sálfræði | Yogakennararéttindi

Tímasetning

Hvenær hentar hópnum þínum?

Tímalengd

Fyrirlestur / Námskeið 1 klst. / Námskeið 2. klst. / Námskeið 2 klst. plús

Staðsetning

Hjá Saga Story House og á vinnustöðum

Verð

Við bendum þér á Áttina, fræðslustyrki fyrir fyrirtæki. Stéttarfélög hafa tekið þátt í kostnaði vegna þátttöku á þessu námskeiði. Við hvetjum þig til að kanna möguleika hjá þínu stéttarfélagi.
Facebook